<![CDATA[SKEIÐVELLIR - Fréttir]]>Sun, 20 May 2012 15:13:00 -0800Weebly<![CDATA[Vaka frá Arnarhóli]]>Mon, 14 May 2012 16:05:17 -0800http://www.skeidvellir.is/1/post/2012/05/vaka-fr-arnarhli.htmlMig langar að segja aðeins frá ræktunarhryssunni okkar Vöku frá Arnarhóli. Hún er með 8.03 fyrir byggingu og 8.63 fyrir hæfileika, samtals 8.33 og var hún í þriðja sæti á LM þegar hún var 6 vetra. Móðir hennar Fluga var einnig í þriðja sæti á LM þegar hún var 6 vetra. Vaka er u. fyrstu verðlauna foreldrunum Kjarval frá Sauðárkróki og Flugu frá Arnarhóli. Vaka er fædd 1988 og kemur til okkar seinni part sumars 1998. Hún hefur reynst okkur mjög góð ræktunarhryssa og eru sjö af átta dæmd afkvæmi hennar með 1 verðlaun.  Afkvæmin hennar hafa líka sannað sig og er t.d. Þerna  sem Pall Stefánsson dýralæknir á komin með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Önnur dóttir hennar Gola er með fjögur dæmd afkvæmi og þaraf 3 í fyrstu verðlaun og eitt alveg við. Vaka var sjálf í öðru sæti af heiðursverðlauna hryssunum á LM 2006. Hún er nú 24 vetra gömul og missti því miður fýlið sitt í vetur, en hún var fengin við Kvist frá Skagaströnd. Hún veiktist mjög míkið en náði sér á strik. Fyrir tveimur árum var hún fósturmóðir folalds sem missti móður sína og var þá með tvö folöld. Vaka er míkið gæðablóð eins og sést á myndunum hér fyrir neðan.
]]>
<![CDATA[Góð keppnishelgi að baki]]>Sun, 13 May 2012 13:11:07 -0800http://www.skeidvellir.is/1/post/2012/05/g-keppnishelgi-a-baki.htmlAð vísu voru veðurguðirnir ekki alveg með okkur, rigning á laugardaginn og rok ídag sunnudag.
En Elín keppti á Selfossi í fjórgangi (flokki2) og endaði í 2 sæti. Reyndar voru þær tvær jafnar í 1-2 sæti en þetta raðadist svona. Hún keppti á Óliver frá Holtsmula, 8 vetra. Siggi fór í 100 m skeiðið á fimmtudagskvöldið og rann skeiðið á 7.98 sek. á honum Spora frá Holtsmúla. Dabbi keppti svo í Mosfellsbæ og varð annar í 100m skeiði  og gæðingaskeiði á hryssunni sinni Irpu frá Borgarnesi. Tíminn var 8.06 sek. í 100 metrunum. Hann var líka í 10 sæti í tölti á Snjöll frá Egilsstaðabæ, 6 vetra. Katrínu tókst ekki alveg að ná inn í úrslit í töltinu í þetta sinn.
]]>
<![CDATA[Hremming hækkar]]>Sun, 06 May 2012 16:19:59 -0800http://www.skeidvellir.is/1/post/2012/05/hremming-hkkar.htmlÍ yfirlitinu ídag gerðist það að Hremming frá Skeiðvöllum hækkaði í skeiði úr 8,5 í 9,5. Svakalega flott hjá 5 vetra hryssu. Hún er þá komin í 8.58 fyrir hæfileika og 8.37 samtals. F. Flygill frá Horni M. Hremmsa frá Holtsmúla 1. Knapi var Sigurður Narfi Birgisson
]]>
<![CDATA[Góðar fréttir frá útlöndum]]>Sat, 05 May 2012 11:35:05 -0800http://www.skeidvellir.is/1/post/2012/05/gar-frttir-fr-tlndum.htmlTvö hross fóru í kynbótadóm í utlöndum ídag. Annað var stóðhesturinn Vakar frá Holtsmúla 1 sem hækkaði fyrri dóm í 8.22 samtals. Bygging 7.89 og hæfileikar 8.44. Hann er sónur Orra frá Þúfu og Vöku frá Arnarhóli. Hitt hrossið var Hremming frá Skeiðvöllum, 5 vetra hryssa u. Flygli frá Horni og Hremmsu frá Holtsmúla 1. Hún hlaut 8.05 fyrir byggingu, 8.41 fyrir hæfileika og 8.27 samtals.
Fyrir þá sem ekki vita er kannski ruglingslegt  að sum hross ú ræktun okkar eru frá Holtsmúla 1 og sum frá Skeiðvöllum, en við áttum heima í Holtsmúla í 25 ár og fluttum svo að Skeiðvelli, þannig að hrossin fædd frá 2006 eru frá Skeiðvöllum.

]]>
<![CDATA[WR íþróttamótið í Keflavík]]>Tue, 24 Apr 2012 10:25:23 -0800http://www.skeidvellir.is/1/post/2012/04/rttamti-keflavk.htmlSl. helgi var lagt af stað til Keflavíkur á opnu íþróttamótið þeirra. Flest öll hér á Skeiðvöllum tóku þátt í hínum ýmsum greinum. Katrín reið á vaðið í fjórgangi opnum flokki 1 og var eftir forkeppni efst inn í B-úrslit. Datt svo niður um eitt sæti í úrslitunum . Frábær árangur hjá henni og Dagfara frá Miðkoti sem er einungis 6 vetra gamall. Dabbi fór svo í gæðingaskeiðið um kvöldið og gerði sér lítið fyrir og sigraði það með glæsibrag á henni Irpu frá Borgarnesi, þau urðu líka í fjórða sæti í 100m skeið.  Ási tamningarmaður stóð sig mjög vel, vann tölt ungmenna og varð annar í fjórgangi og efstur í samanlögðu með gæðinginn sinn Reyr frá Melabergi. Síðast en ekki sist gerði Siggi karlinn það gott þegar hann sigraði 100m skeiðið á honum Spora frá Holtsmúla . Öll voru þau ánægð með árangurinn og mótið sjálft sem fór frám í bliðskapar veðri og frábær aðstaða fyrir knapa og hesta. Katrín tók myndirnar þannig að engin mynd var tekin af henni. Set inn eldri mynd af Katrínu og Dagfara.
]]>
<![CDATA[Fákar og fjör]]>Sun, 15 Apr 2012 12:34:50 -0800http://www.skeidvellir.is/1/post/2012/04/fkar-og-fjr.htmlGlitnir var einn af mörgum stóðhestum sem  fram komu á stórsýningunni "Fákar og fjör" á Akureyri ígær. Fengum við þessar myndir sendar að norðan og er ekki annað að sjá en að hann hefur tekið sig vel út. Minnum við á að Glitnir  tekur á móti hryssum á Syðra-Fjalli í Aðaldal eftir landsmót. Hann er með 8,35 í aðaleinkunn og 126 í blup.
Verð: 80.000.- með öllu (vsk. hólfagjaldi og einni sónarskoðun).
Staðfestingargjald er 20.000.- sem greiða þarf fyrir 15. maí.
Pantanir hjá Einari Víði í síma 869-3248 eða á netf. einarve@simnet.is
]]>
<![CDATA[Sölumótið á Skeiðvöllum]]>Sun, 15 Apr 2012 06:35:28 -0800http://www.skeidvellir.is/1/post/2012/04/slumti-skeivllum.htmlÍgær fór fram opið sölumót hér á Skeiðvöllum. Þáttaka var nokkuð góð og hópur af fólki kom til að skoða gripina. Vegna snjókomu þurfti að færa keppnina inn í reiðhöll. Fjögur söluhross sem eru hér á Skeiðvöllum tóku þátt og stóðu sig mjög vel. Óliver frá Holtsmúla og Elín Hrönn lenti í 2 sæti í fjórgangi með eink. 6.50, Snjöll frá Egilsstaðakoti og Ásmundur Ernir  sigruðu töltið með eink. 7.0 og Ásgrímur frá Meðalfelli og Davið urðu í 2 sæti  með eink. 6.72. Ásmundur varð einnig í 3 sæti í fimmgangi með hryssunni Sunnu frá Holtsmúla, eink. 5.55. Góður árangur og skemmtileg uppákoma.
]]>
<![CDATA[Tvær efnilegar]]>Mon, 02 Apr 2012 09:05:12 -0800http://www.skeidvellir.is/1/post/2012/04/tvr-efnilegar.htmlVið fórum til Jakobs í lok mars að skoða nokkur hross sem hann er með í þjálfun. Náðist nokkrar góðar myndir af hryssunum okkar Flekku frá Skeiðvöllum og Sóleyu frá Skeiðvöllum.
Flekka er 5 v jarpskjótt u. Álfasteini frá Selfossi og Flugsvinn frá Holtsmúla
Sóley er 4 v rauð u. Klett frá Hvammi og Spyrnu frá Holtsmúla.
Báðar þessar hryssur eru mjög spennandi og sérstaklega geðprúðar
]]>
<![CDATA[Byggingadómur hrossa]]>Sat, 25 Feb 2012 12:16:13 -0800http://www.skeidvellir.is/1/post/2012/02/byggingadmur-hrossa.htmlÍdag var haldið námskeið hvernig á að dæma byggingu hrossa hér á Skeiðvöllum. Námskeiðið var á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við Hrossaræktarsamtök Suðurlands og voru 12 nemendur skráðir til leiks. Mikill áhugi var hjá nemendum og byggingu mismunandi hrossa skoðuð. Kom ýmislegt þar á óvart og ekki er alltaf eins og sýnist.  Þegar hrossin eru bútuð niður og dæmdur er hver hlutur fyrir sig getur útkoman verið allt öðruvísi en heildarsvipurinn sem augað nemur kannski fyrst. Kennari var Þorvaldur Kristjánsson.

]]>
<![CDATA[Hremming frá Skeiðvöllum]]>Fri, 20 Jan 2012 09:45:03 -0800http://www.skeidvellir.is/1/post/2012/01/hremming-fr-skeivllum.htmlVið fengum nokkra flotta myndir frá nýju eiganda Hremmingar í Þyskalandi. Það gengur alveg frábærlega með hana, brokkið að styrkjast, tölt og skeið nú þegar orðið mjög gott. Þetta er ekki mikið tamin hryssa á 5 vetur u. Flygli frá Horni (8.37) og Hremmsu frá Holtsmúla (8.17). Það er gaman að fá svona góðar fréttir af seldum hrossum.
]]>