Vetrarveður 04/01/2012
Nokkrar myndir teknar ígær þegar við vorum að færa hross úr einu hólfi í annað. Það var mjög fallegt vetrarveður og Hekla skartaði sínu fegursta þegar sólin var að setjast. Add Comment Jólakveðjur 18/12/2011
Við óskum vinum fjær og nær gleðilegra jóla og farsældar á nýju ár. Þökkum liðin ár og góðar samverustundir Hremming komin til Þyskalands 15/12/2011
Fengum þessa flottu mynd frá nýjum eiganda Hremmingar frá Skeiðvöllum, sem fór út í lok nóvember tæplega þriggja mánaða tamin. Sýnist allt vera í góðum málum þar. Hremming er á 5 vetur u. Flygli frá Horni 8.37 og Hremmsu frá Holtsmúla 8.17. Gaman þegar vel gengur. Í stóðhestagirðingunni 11/12/2011
Ég tók nokkrar myndir af tryppunum í stóðhestahólfinu ídag Hrossastúss 08/12/2011
Töluvert hrossastúss hjá okkur ídag þegar við vorum að ormahreinsa rúmlega hudruð hross. Einhver hross voru svo færð til og önnur tekin heim. Alltaf góð tilfinning að vera búin að þessu fyrir veturinn Reiðnámskeið með Peter De Cosemo 03/12/2011
Nú er buið að standa yfir reiðnámskeið hér á Skeiðvöllum með Peter De Cosemo. Peter er breskur reiðkennari og knapi í klassiskri reiðmennsku. Þó að hann sé ekki vanur tölti og ganghestum segir hann að grunnurinn sé alltaf eins hjá öllum hestum. Skilningur - traust - virðing - líkamleg geta. Hann segir "If it works it can´t be wrong, but if it doesn´t work it´s not right". Eitthvað til í þessu. Skemmtilegt og lærdómsríkt námskeið. Eitt kvöldið var opin sýnikennsla og mætti um 100 manns til að fylgjast með og læra Sónarskoðað hjá Orra frá Þúfu 20/10/2011
Ídag var síðasti sónarskoðunin hjá Orra frá Þúfu og það var mjög ánægjulegt að fara með 3 fengnar hryssur heim. Folöldin mun fæðast í júli og byrjun águst á næsta ári. Kappinn hefur staðið sig vel í ár Myndir teknar ídag 18/10/2011
Ég fór að kíkja á folaldshryssurnar ídag . Það var kallt en sól og fínt. Náði þessum myndum af nokkrum folöldum. Tók svo nokkrar myndir af honum Vigra frá Holtsmúla þar sem hann sprangaði um í gulu haustgrasinu. Glitnir með 126 í BLUP 17/10/2011
Glitnir frá Eikarbrekku hefur hækkað BLUPið sitt úr 125 í 126 og er nú í 10 sæti á heimslistanum yfir stóðhesta með 0-10 afkvæmum. Hann er líka í sjöunda sæti miðað við einkunn 8.35 í flokki 5 vetra stóðhesta í ár. Ekki hægt að segja annað en að það hafi gengið vel hjá Glitni í ár. Við erum mjög lukkuleg með hann Hnyðja felld 08/10/2011
Síðasti afkvæmi Hnyðju fæddist 2007 og er hún síðan búin að ganga með folaldshryssunum og hafa það gott í ellinni. Hún var felld ígær 25 vetra gömul. Hnyðja var u. Kjarval frá Sauðárkróki og var hún klárhryssa með 8,5 í öllu nema brokk þar sem hæún var með 9. Hún var líklegast þekktust fyrir að vera móðir heimsmeistarans Hvins frá Holtsmúla. |


