SKEIÐVELLIR
  • Forsíða
    • Home
    • Fréttir
      • News
      • Hryssur
        • Mares
        • Stóðhestar
          • Stallions
          • Folöld
            • Foals
            • Um okkur
              • About Us
              • Ræktun okkar
                • Our Breeding
                • Söluhross
                  • Sale Horses
                  • Hafa samband
                    • Contact
                    Hremming frá Skeiðvöllum 20/01/2012
                    0 Comments
                     
                    Við fengum nokkra flotta myndir frá nýju eiganda Hremmingar í Þyskalandi. Það gengur alveg frábærlega með hana, brokkið að styrkjast, tölt og skeið nú þegar orðið mjög gott. Þetta er ekki mikið tamin hryssa á 5 vetur u. Flygli frá Horni (8.37) og Hremmsu frá Holtsmúla (8.17). Það er gaman að fá svona góðar fréttir af seldum hrossum.
                    Add Comment
                     
                    Vetrarveður 04/01/2012
                    0 Comments
                     
                    Nokkrar myndir teknar ígær þegar við vorum að færa hross úr einu hólfi í annað. Það var mjög fallegt vetrarveður og Hekla skartaði sínu fegursta þegar sólin var að setjast.
                    Add Comment
                     
                    Jólakveðjur 18/12/2011
                    0 Comments
                     
                    Við óskum vinum fjær og nær gleðilegra jóla og farsældar á nýju ár. Þökkum liðin ár og góðar samverustundir
                    Picture
                    Add Comment
                     
                    Hremming komin til Þyskalands 15/12/2011
                    0 Comments
                     
                    Fengum þessa flottu mynd frá nýjum eiganda Hremmingar frá Skeiðvöllum, sem fór út í lok nóvember tæplega þriggja mánaða tamin. Sýnist allt vera í góðum málum þar. Hremming er á 5 vetur u. Flygli frá Horni 8.37 og Hremmsu frá Holtsmúla 8.17. Gaman þegar vel gengur.
                    Picture
                    Add Comment
                     
                    Í stóðhestagirðingunni 11/12/2011
                    0 Comments
                     
                    Ég tók nokkrar myndir af tryppunum í stóðhestahólfinu ídag
                    Add Comment
                     
                    Hrossastúss 08/12/2011
                    0 Comments
                     
                    Töluvert hrossastúss hjá okkur ídag þegar við vorum að ormahreinsa rúmlega hudruð hross. Einhver hross voru svo færð til og önnur tekin heim. Alltaf góð tilfinning að vera búin að þessu fyrir veturinn
                    Picture
                    Add Comment
                     
                    Reiðnámskeið með Peter De Cosemo 03/12/2011
                    0 Comments
                     
                    Nú er buið að standa yfir reiðnámskeið hér á Skeiðvöllum með Peter De Cosemo. Peter er breskur reiðkennari og knapi í klassiskri reiðmennsku. Þó að hann sé ekki vanur tölti og ganghestum segir hann að grunnurinn sé alltaf eins hjá öllum hestum. Skilningur - traust - virðing - líkamleg geta. Hann segir  "If it works it can´t be wrong, but if it doesn´t work it´s not right". Eitthvað til í þessu. Skemmtilegt og lærdómsríkt námskeið. Eitt kvöldið var opin sýnikennsla   og mætti um 100 manns til að fylgjast með og læra

                    Add Comment
                     
                    Sónarskoðað hjá Orra frá Þúfu 20/10/2011
                    0 Comments
                     
                    Ídag var síðasti sónarskoðunin hjá Orra frá Þúfu og það var mjög ánægjulegt að fara með 
                    3 fengnar hryssur heim. Folöldin mun fæðast í júli og byrjun águst á næsta ári. Kappinn hefur staðið sig vel í ár
                    Picture
                    Add Comment
                     
                    Myndir teknar ídag 18/10/2011
                    0 Comments
                     
                    Ég fór að kíkja á folaldshryssurnar ídag . Það var kallt en sól og fínt. Náði þessum myndum af nokkrum folöldum. Tók svo nokkrar myndir af honum Vigra frá Holtsmúla þar sem hann sprangaði um í gulu haustgrasinu.
                    Add Comment
                     
                    Glitnir með 126 í BLUP 17/10/2011
                    0 Comments
                     
                    Glitnir frá Eikarbrekku hefur hækkað BLUPið sitt úr 125 í 126 og er nú í 10 sæti á heimslistanum yfir stóðhesta með 0-10 afkvæmum. 
                    Hann er líka í sjöunda sæti miðað við einkunn 8.35 í flokki 5 vetra stóðhesta í ár.
                    Ekki hægt að segja annað en að það hafi gengið vel hjá Glitni í ár. Við erum mjög lukkuleg með hann
                    Picture
                    Add Comment
                     
                    << Previous
                      Picture

                      Skeiðvellir

                       ræktun - sala

                      Picture
                      Picture

                      eldri efni

                      January 2012
                      December 2011
                      October 2011
                      September 2011
                      August 2011
                      July 2011
                      June 2011
                      May 2011
                      April 2011
                      March 2011
                      February 2011
                      January 2011
                      December 2010
                      November 2010


                    copyright © Skeiðvellir 2010